|
18.03.2010 23:06:16 / Halldór
Eins og áður hefur verið rætt var samþykkt á aðalfundi að rukka félagsgjöld í gegnum heimabanka hér eftir. Ég er búinn að senda út rukkanir fyrir þetta ár og ættu þær að verða sýnilegar á morgun. Þetta eru að sjálfsögðu valfrjálsar kröfur og enginn kostnaður eða vextir reiknaðir.
Ef einhverjir telja sig vera hætta í klúbbnum einfaldlega sleppa þeir því að borga eða hafa samband og ég felli málið niður.
Eins ef einhverjir fá ekki rukkun, þá eru þið ekki í mínum skrám og hafið endilega samband til að kippa því í liðinn.
Halldór Ingi
»
05.03.2010 10:49:23 / Einar Karl
Hvað finnst ykkur um að kúplingin sem enntist ekki lengur en 7000 km. Það er ár á morgun sem að ég skipti um eftir Þorrablótið 4x3 í fyrra , er það bílstjórinn eða hvað það eru stóru orðin??????????
»
03.03.2010 11:40:11 / Halldór
Jæja þá er ég búinn að henda inn myndum úr þessari annars þrælfínu þorraferð http://www.4x3aflugi.com/Myndir-Torrablot-2010.htmlÞakka öllum fyrir samveruna og góða skemmtun. Sá sem fór heim með inniskóna mína kemur þeim kannski til skila  Annars er bara almenn ánægja með ferð enda menn orðnir langþreittir eftir snjó
»
25.02.2010 21:31:59 / Halldór
Jæja þá er þetta að smella á og ekki lengur fólksbílafæri inn í Hóla eins og var  Gýmirinn bakkaði úr nefndarstörfum en Jósi kom hinsvegar feikisterkur inn á kantinum í hans stað. Við rúllum úr Vikinni um 9 leitið og náum í matinn á Klaustur. Þeir sem vilja hinsvegar halda í gamla siði og leggja í hann kl 7:16 að staðartíma gera það bara og við hittumst í einhverjum skaflinum. Stefnan fer eftir skyggni, veðri og (sem betur fer) færð en miðað við spánna verður ekkert útsýni af Breiðbak þannig að við kíkjum þá bara inn í dali. Annars er manni bara farið að hlakka til
»
22.02.2010 06:49:09 / Halldór
Þá er að borga fyrir blót. Verðið er 3200 fyrir blót og 1500 fyrir gistingu, á mann. Þetta skal leggjast inn á 317-26-2460 kt. 480207-2460 fyrir kl 16 á þriðjudag. Vinsamlegast látið berast.
Nefndin.
»
21.02.2010 16:21:15 / Halldór
Var að grafa upp gamla hóp sms listann minn og senda boð á alla, ef þið hafið ekki fengið boð vinsamlegast smellið á mig sms svo ég geti uppfært listann.
Halldór Ingi s:8916190
»
07.02.2010 23:56:53 / Halldór
Þorrablót 4x3 verður haldið laugardaginn 27 febrúar í Hólaskjóli. Að venju verður mikil gleði og ýmislegt brallað. Halldór, Gýmir og Þráinn eru í forsvari fyrir skemmtuninni þetta árið og gera eflaust eitthvað skemmtilegt. (það er að segja ef þeir komast útaf snjó og bílleysi) Skráið ykkur hér eða hafið samband við ofangreinda.
Nefndin
»
27.01.2010 18:31:50 / Elli
...eitthvað virðist hafa borið á árekstrum hestamanna og hjólafólks uppá síðkastið. Þar sem veturinn virðist ekki ætla að leika okkur mjög grátt þá hefur verið alveg ekta veður til að stunda bæði hestasportið og hjólasportið til hins ítrasta undanfarna daga og vikur. ekki hefur það gengið alveg árekstralaust þ.e. þetta er ekki talin góð blanda og nú hafa hestamenn og konur hér í Vík farið fram á fund með sýslumanni, lögreglu, sveitastjóra og hjólamönnum og konum. Þessi fundur fer fram á Ströndinni í Víkurskála nk.föstudag 29.jan.kl.12 þ.e. í hádeginu. Eftir því sem mér skilst er mæting frjáls og allir sem eiga hagsmuna að gæta hvattir til að mæta. Stjórn 4x3 sem og við úr hjóladeildinni mætum á þennan fund. Ef að þú telur að þú hafir eitthvað uppbyggilegt um málið að segja, þá vinsamlegast láttu sjá þig í hádeginu nk.föstudag ...
»
19.01.2010 23:31:41 / Halldór
Aðalfundur 4x3 verður haldinn föstudagskvöldið 29 Janúar kl 20:30 Venjuleg aðalfundarstörf sem og bollaleggingar um stefnur og framtíð klúbbsins.
Á eftir verður óformlegt afmælisbjórkvöld klúbbsins (blóm og kransar afþakkaðir) af tilefni tíu ára tilveru 4x3
Stjórnin
»
18.01.2010 21:07:25 / Ragna
Er einhver farinn að hugsa um blót ?
verður eitthvað þetta árið ?
-Ragna
»
26.09.2009 10:59:44 / Elli
eru menn til í Blágil helgina 21.nóvember ...btw. Ólafur Ingi verður fararstjóri, þannig að við erum að tala um alvöru skemmtiferð !!
»
25.08.2009 09:52:25 / Elli
...þar sem mig minnir að í vor hafi einhverjir beðið um límmiða stóra sem smáa, þá eru til nokkrir límmiðar hjá mér. Ég á til 4 stóra og helling af litlum ef einhverjum vantar slíkt. þarf svo ekki að fara að hrista aðeins upp í okkur og fara einsog eina góða haustferð með bjórkveldi í restina...
»
10.03.2009 08:28:14 / Elli
það týndist dökk úlpa inní hólum um þorrablótshelgina. það er helst að seinustu bílar úr hólum hafi hugsanlega tekið hana með sér, því þessi úlpa finnst ekki inní Hólaskjóli. Ef að þeir sem voru seinni bílar úr Hólaskjóli myndu skoða í skottið eða aftursætið hjá sér  og að þar væri eitthvað sem menn ekki könnuðust við. Látið okkur vita Elli 896-0360 eða Jósi 869-5681.
»
09.03.2009 21:27:26 / Halldór
Á síðasta aðalfundi var ákveðið að halda félagsgjöldum óbreyttum eða 800 krónur heilar og 1300 hjá þeim sem eru með rásina, að vanda eru menn beðnir að leggja þetta inn á reikning klúbbsins á jómfrúareyjum  Nei ætli það sé ekki frekar, 0317-26-2460 kt 480207-2460 og skal það gerast fyrir tuttugasta þessa mánaðar.
»
06.03.2009 18:14:04 / Halldór
Það er ekki von að bíll sem kemst ekki milli húsa í Víkinni komist yfir jökul 
»
Síður: 1 2 3 ... 23
|